Nú er náminu hérna úti að ljúka, en ég mun í bili njóta þess sem útlönd hafa upp á að bjóða.
Ég er búinn með 4 próf og á eitt eftir, árangurinn er fram að þessu betri en ég þorði að vona og er ég margs vísari um lögin, lífið og tilveruna eftir þessa mánuði.
Fyrir nokkrum vikum, stuttu fyrir prófin var juwenalia haldið hér í Lodz. Juwenalia er nokkurskonar stúdentadagar, þar sem háskólinn bíður stúdentum upp á útitónleika og nemendur hópast á grasflatir kringum heimavistar, grilla, drekka og njóta veðursins(sem oftast er orðið betra en góðir sumardagar á Íslandi).
Ég naut þar veðurblíðunnar(og slatti af moskítóflugum nutu mín einnig), hlustaði á góða tónleika, fékk frábærar pólskar pylsur og bauð upp á brennivín og lakkrís í staðin. Því miður eiga SS pylsur ekki roð í pólskar, svo þær bíða enn í frystinum.
Prófin hafa gengið mjög vel, eina sem spillir fyrir er veðrið, sem hefur verið prýðisgott undanfarið. Það er strax kominn nokkur söknuður, sérstaklega þegar einungis eitt próf er eftir, og er ljóst að ég kem til með að sakna lagadeildarinnar hér í Lodz.
En ég mun ekki snúa heim fyrr en eftir tvo mánuði rúmlega, fram að því þá er stefnt að því að heimsækja vini og kunningja á meginlandinu, og njóta alls þess sem rjómi evrópu hefur upp á að bjóða, þar með taldar ekolígúrkur og mengaðar baunaspírur.





